UM KÓLONÍU

Kólónía sérhæfir sig í sölu á hátæknibúnaði til greiningar á vatnsgæðum með tilliti til bakteríumengunar. Fyrirtækið er umboðsaðili hins breska tæknifyrirtækis MolEndoTech, sem er frumkvöðull í þróun tækni sem gerir kleift að greina bakteríumengun í vatni á innan við 15 mínútum. Slík hraðgreining skiptir miklu máli í lýðheilsu- og umhverfisvernd.

Starfsfólk Kólóníu býr yfir sérfræðiþekkingu í raunvísindum og matvælaframleiðslu og veitir faglega ráðgjöf um notkun BacteRisk prófunarkerfisins. Lögð er áhersla á hágæða vörur, áreiðanlegar niðurstöður og framúrskarandi þjónustu.

Hafðu samband við okkur og fáðu ráðgjöf:
✔ Til að fá nánari upplýsingar um BacteRisk-tækið og niðurstöður úr raunverulegum rannsóknum
✔ Ræða hvernig tækið hentar þinni starfsemi eða rannsóknaverkefni
✔ Skipuleggja sýnikennslu, hvort sem er á netinu eða á vettvangi

Reglulegt eftirlit er lykilatriði til að tryggja öryggi vatnsins.