tæknin

Ólíkt hefðbundnum aðferðum við mælingu vatnsgæða gerir BacteRisk þér kleift að framkvæma nákvæmt áhættumat á vettvangi á aðeins 15 mínútum.

Gram-neikvæðar bakteríur
Hættulegustu bakteríutegundirnar sem finnast í menguðu vatni flokkast sem gram-neikvæðar bakteríur. Ólíkt gram-jákvæðum bakteríum hafa þær harðan, verndandi ytri hjúp, auk þess sem þær eru mjög þolnar gagnvart sýklalyfjum. Af þessu sökum er erfitt að uppræta þær.

Þegar frumuveggur gram-neikvæðra baktería rofnar, losa þær endotoxín. Í sýkingum í mannslíkamanum getur þessi losun aukið alvarleika veikinda og jafnvel leitt til blóðeitrunar. Endotoxín, einnig þekkt sem lípópolýsakkaríð (LPS), eru aðalsameindirnar í ytri frumuveggjum gram-neikvæðra baktería, eins og E. coli, kommusýkla (Vibrio), kampýlobakter og salmonellu.

Með því að mæla magn endotoxína má fá upplýsingar um áhættu af viðkomandi bakteríum og því hentar þessi tækini sérlega vel í í umhverfisrannsóknum. Þau eru auðveldari og hraðvirkari í greiningu en bakteríurnar sjálfar. Með því að mæla magn endotoxina er unnt að fá bæði upplýsingar ummengun og meta alvarleika hennar og taka ákvörðun um hvort gera þurfi frekari rannsóknir.