Mælitæki sem einfaldar vöktun á vatnaumhverfi á aðeins 15 mínútum
Tækið hentar einstaklega vel fyrir sveitarfélög sem vakta vatnsgæði í ám og vötnum, verkfræðistofur, sundlaugar og einstaklinga sem stunda t.d. sjósund.
Kólonía selur mælitæki sem einfaldar vöktun á vatnaumhverfi og hjálpar þér að meta á staðnum hvort það sé öruggt og heilbrigt fyrir þá sem það nota. Unnið hefur verið að þessari tækni í nokkur ár og erum nú komin á þann stað að geta boðið á Íslandi uppá einfalt mælitæki sem byggir á Bacte Risk aðferðafræðinni. Niðurstaðan er að þú getur metið áhættuna við að nota vatnið, hvort sem um er að ræða baðvatn á sundstað, í náttúrulegri baðlaug eða á baðströnd á 15 mínútum.
Flestir Íslendingar líta á á hreint og tært vatn sem sjálfsagðan hlut og fólk treystir því að baðvatn á sund og baðstöðum sé hæft til baða. Því miður geta aðstæður verið þannig að svo er ekki.
Þá er ákveðin hætta á sýkingum af ýmsu tagi allt eftir því hvaða bakteríur eru í vatninu og í hvaða magni þær berast í gesti.
Hægt er að koma í veg fyrir þessa áhættu með reglubundnum mælingum á vatninu og réttum viðbrögðum þegar við á.