EINFALDARA, ÖRUGGARA, HRAÐVIRKARA og SNJALLARA
Hingað til hefur vatnsgæðamæling alltaf falið í sér ákveðna takmörkun. Ef aðferðin var áreiðanleg tók hún klukkustundir eða daga. Ef hún var hraðvirk var hún dýr og flókin í notkun.
BacteRisk er eina tæknin sem sameinar hraða, nákvæmni, hagkvæmni og einfaldleika í notkun á vettvangi.
FLJÓTVIRKNI
BacteRisk skilar niðurstöðum á aðeins 15 mínútum, sem gerir kleift að bregðast hratt við. Prófunarsettið kvarðar sig sjálft, þannig að hvorki þarf að endurstilla það né sótthreinsa milli mælinga.
Einnig er hægt að greina fleiri en eitt sýni samtímis sem er sérstaklega gagnlegt við rakningu mengunar frá sauruppsprettum en stærra tækið býður upp á greiningu á 10 sínum á sama tíma. Minna tækið er hannað fyrir eitt sýni.
ÖRYGGI
Þegar niðurstöður BacteRisk voru bornar saman við hefðbundnar ræktunaraðferðir, eins og himnusíun, sýndu þær sterka fylgni.
Þessi háa nákvæmni tryggir að hægt er að treysta á BacteRisk til að framkvæma hraðvirkt og öruggt áhættumat á staðnum.
SVEIGJANLEIKI
BacteRisk-prófunarsettið er hannað til vettvangsmælinga. Það er létt og endingargott.
Tækið er með IP67-vatnsheldni og hentar til að prófa hvers yfirborðsvatn í sjó eða á landi s.s. baðvatn, árvatn eða stöðuvatn.
Kerfið krefst lágmarks þjálfunar, sem gerir það aðgengilegt fyrir breiðan hóp notenda.
HAGKVÆMNI
Eftir kaup á BacteRisk-prófunarsettinu kostar hver mæling u.þ.b. 4.500 krónur á sýni.
Með því að greina og bregðast við mengun snemma er hægt að forðast óþarfa lokanir, sektir og skaða á ímynd fyrirtækja, sem getur sparað bæði tíma og fjármuni til lengri tíma litið.
HELSTU EIGINLEIKAR
Eftir kaup á BacteRisk-prófunarsettinu kostar hver mæling u.þ.b. 4.500 krónur á sýni.
Með því að greina og bregðast við mengun snemma er hægt að forðast óþarfa lokanir, sektir og skaða á ímynd fyrirtækja, sem getur sparað bæði tíma og fjármuni til lengri tíma litið.
✔ 15 mínútna prófunartími
✔ ±0,5°C nákvæmni í hitastýringu
✔ IP67-vatnsheldni
✔ Rafhlöðuending í 24 klst. eða 24 mælingar á hverri hleðslu
✔ LCD-stafrænn skjár
✔ Mælisvið: 0–10.000 Endotoxin Risk Units (ER)
Prófaðu vatnsgæði í þremur einföldum skrefum
1. Kveiktu á BacteRisk-tækinu og það hitar sig upp í 36¨C
2. Sýni er fært í þynningarglas með píphettu sem fylgir tækinu. Sýnið er hrist í 10 sekúndur og síðan fært með píphettu í prófunarglas.
3. Prófunarglasið er sett í tækið og því lokað , smellt er á „SELECT“ og fáðu niðurstöður á 15 mínútum
Kostir BacteRisk
✔ Auðvelt að nota hvar sem er
✔ Niðurstöður á aðeins 15 mínútum
✔ Einföld uppsetning
✔ Auðvelt í notkun
✔ Kostnaður um 4.500 kr. á hverja mælingu
✔ Stafræn niðurstaða
